Nokkur ráð til að viðhalda fílunni
24. apríl 2006 klukkan 20:19
1. · Talaðu ekki við neinn sem gæti verið upplífgandi.
2. · Lokaðu öllum gluggum og andaðu að þér fúlu lofti.
3. · Pældu í því hvað þú átt bágt – miðað við alla hina.
4. · Farðu seint að sofa – þá verður svo ljómandi fúlt að vakna.
5. · Hentu tannburstanum – og fýlan verður áþreifanleg.
6. · Úðaðu í þig sælgæti – og fýlan breytist í ósvikið þunglyndi.
7. · Segðu já þegar þú meinar nei.
8. · Hreyfðu þig sem minnst – annars hressist þú of mikið.
9. · Ákveddu að öllum sé illa við þig – og hefndu þín á þeim.
Elín Ósk Magnúsdóttir

Skólavikan búin (ef viku má kalla, mætti 2 daga) Og framundan er lærdómshelgi....mmmhh unaðslegt
Lokapartý JCS í kvöld og það verður örugglega hörku stemmari!! Ég ætla að sjálfsögðu að mæta, keyrandi og edrú og fara heim um kvöldið...ég er svo úber svöl á nýþvegna og glansandi volvónum mínum 

dem fíið er búið!! Það verður bara að taka því. 2ja mánaða törn og svo er þetta helvíti búið og þá 2ja og hálfs mánaða frí og svo 9 mánaða törn og þá er ég frjáls sem fuglinn (vá skildi einhver þessa síðustu setningu? ég er semsagt að fara að útskrifast eftir ár...svona til einföldunar
)
Frekar mikil þynnka í gangi
, við systkinin vorum góð saman hérna (þ.e. ég og Óli) Gerði ekkert allann daginn hafi ekki einu sinni afl í að kíkja á myndirnar 
úff vá, ég veit, ég er geðveikur. Hey vá, þetta þýðir að reiðbuxurnar mínar eru líka orðnar 5 ára...það er nokkuð góð nýting, hver vill gefa mér reiðbuxur í tilefni dagsins? Þær fást í Ástund