Prófíll

  • Nafn: Elín Ósk Magnúsdóttir
  • Staður: Blönduós
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: á lausu
  • Um mig: Æj fokk off
  • Annað: eins og??

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

í fréttum er þetta helst...

27. ágúst 2007 klukkan 18:01
...að ég fékk flugmiðann minn í hedur í dag, ég fer út 12.sept efti 16 daga Hlæjandi Loksins er komin dagsetning á það sem ég er búin að vera bíða eftir í fimm ár eiginlega!! Ég ákvað nefnilega þegar ég fór til Noregs þegar ég var 15 ára að þangað skildi ég fara aftur og helst sem au-pair þegar ég væri búin með stúdentinn...og nú er bara að koma að þessu...ótrúlegt ...
Nú þarf að fara að ákveða hvað á að taka með og hvað ekki...ég sem þarf alltaf að fara með öll fötin mín...líka bolina sem ég nota aldrei, bara ef mig myndi allt í einu langa til að fara í þá. En ég má víst bara fara með 20 kíló svo bolirnir fá sennilega bara að vera heima í þetta skiptið...

...að ég fór til Akureyriar um helgina og hitti stelpurnar mínar, alltaf jafn gott og gaman að hitta þær þessar elskur, við brölluðum margt og hlógum mikið. Fórum líka niður í bæ á lau kvöldið á menningarvökuna, nokkuð skemmtilegt bara. En ég og Abba gerðumst gamlar og vorum komnar í rúmið kl 12 enda var okkur orðið óeðlilega kalt...

...að Elín er komin heim frá Krít, sólbrunnin og sæt. Hún gaf mér hestahandklæði :) víí. Og ótrúlegt en satt þá er þetta mitt fyrsta hestahandklæði...hehe

...að dagurinn í dag er sjálfsagt misheppnaðasti dagurinn í vinnunni í langann tíma. Vorum að fá nýjar umbúðir fyrir rjómaostinn, lokin passa ekki almennilega í pökkunarvélina svo að ég stóð dággóðann tíma í dag og þrýsti ofan á lokin til að vélin næði lokunum...skemmtilegt það. Svo þegar við vorum loksins búin að pakka upp úr 2 minnir mig (erum venjulega búin um 12) þá var allur rjómaosturinn náttúrulega inn á kæli...og kl 4 uppgötvaðist það að hitastigið var komið upp í 30°C svo við þurftum að bjarga ostinum í snatri...sjæsinn sko! Þá voru einhverjir viðgerðargaurar að klúðra þessu hitastigi svona illilega! En jæja...ég var komin heim upp úr 5...jeyjj...

...að það er komin ný könnun sem allir eiga að svara!

...að ég ætla að hætta þessu blaðri og fara að taka til í herberginu mínu og þvo þvott...gaman...?

En þrátt fyrir þennan misheppnaða dag þá er ég samt í skýjunum út af því að e´g er komin með flugmiðana...þeir komu svo á hárréttum tíma Hlæjandi

Mange klemmer
Elín Ósk
Elín Ósk Magnúsdóttir
Dóra Rún skrifar ...
 
Ég er svo ánægð fyrir þína hönd. Það hlýtur að vera gaman að lifa núna hjá þér:)
27. ágúst 2007 klukkan 21:10
Erla Rut skrifar ...
Ohh...vá já þetta er svo æðislegt fyrir þig, láta draumana rætast einn af öðrum:) Hhehe..já vá ég trúi því varla að þú hafir aldrei átt hestahandklæði!!!!
27. ágúst 2007 klukkan 22:55
Anna Bjørk skrifar ...
 
Til lukku med midana mín kæra :D Tetta er bara alveg ad fara ad gerast, man einmitt hvad ég var ad deyja tegar ég flutti til Svítjódar :P

Einmitt núna sit ég á einhverju bókasafni og er ad bída eftir tví ad mæta í vinnuna. Var úti á flugvelli ádan ad fylgja japønsku stelpunni , hún er ad fara ad fljúga á eftir til Gautaborgar til ad fara í skóla og hún var einmitt ad DEYJA úr spenningi, gat ekki bordad og gat ekki sofid og var bara eitt bros allan hringinn á milli tess sem hún stundi "ó my god", hehe... Ég fékk alveg flashback og veit sko alveg hvernig tér á eftir ad lída rétt fyrir brottfør ;D

En jább, best ad brima meira á netinu ;)
28. ágúst 2007 klukkan 11:08
Valborg Rut skrifar ...
Gaman að heyra þetta :) Ég fylgist með ykkur þarna úti ;)
28. ágúst 2007 klukkan 17:46
Abba skrifar ...
 
Sjúbbídúbbí vává. Mikil gleði... ég stend í miklum flutningum og pökkunum þessa dagana líka. Afar skemmtó. Jakkinn þinn er samt svo ÓGEÐSLEGA mikið fyrir mér að ég var næstum því búin að henda honum í ruslið ásamt ógerðum sálfræðiverkefnum og ógreiddum reikningum. Ef ég verð ekki búin að koma öllu ofan í kassa fyrir föstudaginn er það þér að kenna. Og hananú.

Nei djók. Þú ert samt miklu eldri en ég enda sofnaðiru á meðan ég burstaði tennurnar.
28. ágúst 2007 klukkan 19:44
Thelma skrifar ...
12. sept er góður dagur ;)
það er dagurinn sem lítil snót fæddist fyrir áraröðum ;)

Skemmtu þér ógó vel sæta mús

btw. .. kannast við að reyna að ákveða hvað maður eigi að taka með sér, það er helvede skom ;) þú átt eftir að skemmta þér bilað mikið, og ert svooo heppin að hafa haft ellu völlu gautzen í allt sumar.. dísus..

;)
29. ágúst 2007 klukkan 17:19
Thelma skrifar ...
ég er í baltó beibí!!
01. september 2007 klukkan 04:06
Gautzen skrifar ...
það er ekki laust við það að maður hafi orðið aðeins var við það að þú varst búin að fá flugmiðana eða með vesenið með þessa déskotans pökkunarvél... hate that machine :/

en ég vissi að ég væri pottþétt að gefa þér eitthvað sem þú hefur aldrei átt... og líka þegar ég sá þetta handlæði þá sá ég bara þig fyrir mér :D gott að þér líkar það :D

svo er bara víkin á morgun.. úffi púff en vonandi skemmtir þú þér í víkinni núna um helgina... see ya skvís :D
01. september 2007 klukkan 22:06
Arnheiður skrifar ...
Hahah.. vá, aldrei búin að eiga hestahandklæði! Ég hef aldrei vitað um jafn mikla hestaáhugamanneskju eins og þig og þú hefur ekki átt hestahandklæði!!:O
En annars frábært að þú sért að fara út til Noregs og láta draumana rætast! Þetta verður örugglega ótrúlega gaman! Ég væri alveg til í að prófa að fara í svona au-pair! Hvað verðuru lengi?
En allavega, gangi þér bara rosa vel!:)
03. september 2007 klukkan 23:26
Elín Ósk skrifar ...
Takk allir :)

Já Thelma þetta verður erfitt val ;) Vonandi er gaman úti hjá þér :)

Arnheiður: Já svona er þetta..hehe. En ég verð fram að jólum í Noregi.
04. september 2007 klukkan 18:45
Gautzen skrifar ...
AÐEINS ÁTTA DAGAR... JÆKSI DÆKS!!!!!!!!!

Gautzen (er komin með íbúð :D)
04. september 2007 klukkan 21:25
Elín ósk skrifar ...
 
já bara vika núna :S:S enn meira jæksi dæks!

Heyrðu, ég þarf að hitta þig á þriðjudaginn og láta þig fá friends seríurnar þínar!! En get örugglega ekki stoppað lengi :(
En til hamingju með íbúðina :)

(ps staðfestingartölurnar mínar voru 666)
05. september 2007 klukkan 16:06

Skrifa athugasemd

Atburðarteljari

Könnun

Hvað gerir þú?