Prófíll

  • Nafn: Elín Ósk Magnúsdóttir
  • Stađur: Blönduós
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstađa: á lausu
  • Um mig: Ćj fokk off
  • Annađ: eins og??

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

...

12. júlí 2007 klukkan 23:02
jæja þá...ég skal ekki hætta alveg, nenni bara ekki að blogga í sumar, allavega ekki þegar ég á enga tölvu :(  Byrja allavega aftur þegar ég fer út í haust ;)

En annars er e-ð búið að gerast sem ég nenni ekki að skrifa um annað en:
- Brúkaup Óla og Ingu Sóleyjar
- Litli sólargeislinn var skírð í leiðinni og fékk hún það fallega nafn Sunna Margrét.
- ættarmót
- sundferð (sú fyrsta í e-r ár)
- akureyrarferð
- rúntur í 2 og hálfann tíma eitt kvöldið (ég rúnta nánast aldrei, þessvegna eru þetta fréttir)
- mætti á héraðsmót í frjálsum eftir langt hlé, lagði þó ekki í að keppa svo ég var bara starfsmaður ;) (Og auðvitað unnu Geislar samanlagða...hvað annað;))


Held þetta sé u.þ.b. allt svo er bara Húnavakan um helgina :D sem þýðir fánareið á morgun og djamm á bakkanum um kvöldið. Teyma undir krökkum á laugardaginn þunn og fín ;) og svo ball um kvöldið þar sem er skildumæting! Sjæsinn hvað ég hlakka til. Sunnudagurinn verður svo bara tekin í þynnku ;) hehe

Þetta er nóg fyrir ykkur út sumarið ;) (nema ég fái tölvu fljótlega og langi agalega mikið til að byrja að blogga aftur ;))

Tjátjá
Elín Ósk Magnúsdóttir
Erla Rut skrifar ...
 
Flott plan flott plan:D
Þú gerðir þetta í fyrra svo það verður lítið mál að gera þetta aftur núna;)
13. júlí 2007 klukkan 12:56
Anna Björk skrifar ...
Kvittsen skrittsen beibí, þú átt meil :D
15. júlí 2007 klukkan 19:32
Thelma skrifar ...
Hæjjj sæta !!
Takk fyrir gott djamm, bilað gott djamm.. nema var ekki alveg að fíla íþróttamiðstöðina eníveis þetta var STÖÖÖÖÐ!!!! Tekílavinkona hehe ....

VIÐ VORUM ÖLL ANSI SKRAUTLEG ;) ;) ;)
Knúsaðu nöfnuna þína frá mér, hún var svo þunn á sunnudaginn að ég lagði ekki í það hehe!!!
16. júlí 2007 klukkan 15:48
Elín Ósk skrifar ...
HAHA ég frétti að heilsan hefið ekki verið allt of góð hjá hinum ;) Þú hefðir bara átt að vera með okkur Bryndísi...við vorum hressar, bara á rúntinum og svona ;) hehe
16. júlí 2007 klukkan 16:05
Íris kisa skrifar ...
Til hamingju með bróðir þinn og Ingusóley, og litlu frænku;) Ég ætlaði að koma á húnavöku en Rudolf vildi fara á Sykkishólm en iss ég djamma með ykkur næst;)
16. júlí 2007 klukkan 16:45
Thelma skrifar ...
damn.. fjandans þau voru öll að drepast !! algjörir aular... ég man það næst að tala við ykkur í staðinn að vekja alla !!! ;) hnéhnéhné..

þetta var fjandi gaman er það ekki bara fastir liðir eins og venjulega að ég komi núna norður og djammi með þér, gautzen darling, bryndísi og co??!! hehe
17. júlí 2007 klukkan 00:53
Heiđa skrifar ...
 
Kvitten hér frá Heiðu, vá nenni engann veginn að kommenta á þessar blessuðu bloggsíður!!! Vildi bara láta vita að ég kíki af og til sætasta mín (",)
17. júlí 2007 klukkan 01:30
Gautzen skrifar ...
Ógleymanlegt djamm verð ég að segja og yndilegar myndir af einu af frekar mörgum tekílaskotum hjá ykkur drottningunum :D

En sjáumst ferskar á morgun ;)
17. júlí 2007 klukkan 17:39
Elín Ósk skrifar ...
Takk Íris :) Já þú kemur bara næst ;)

Thelma...einu sinni smakkað þú getur ekki hætt ;) Djamm á dósinni klikkar ekki :P hehe

Já takk Heiða...mættir nú samt skilja oftar eftir spor :)

Elín...já þetta var hrikalega gott djamm :) Ferskar í vinnunni? U wish ;) En við lifiðum daginn í dag af án þess að rústa pökkunarvélinni...þá getum við allt :D Spurning um það hvort potturinn verður komin í lag á morgunn :P hehe
17. júlí 2007 klukkan 19:36
Abba skrifar ...
 
Hæ dúllan mín. Það er svo langt síðan ég heyrði í þér síðast. Ég reyndi að hringja í þig áðan en þú svaraðir ekki. Ég veit að ég er ekkert sérstaklega dugleg við að hafa samband en ég reyni þó. Vildi bara að þú vissir að ég sakna þín og hugsa til þín. Ég mun ná á þér í nánustu framtíð hvort sem þér líkar betur eða verr. Bið að heilsa í bæinn.
18. júlí 2007 klukkan 17:53
ELín Ósk skrifar ...
 
Sakna þín líka Abba mín :* Ég var bara í sveitinni að smala og stússast í hestum og var ekki með símann minn fyrr en ég fór að sofa...heyri kannski í þér í dag :)
19. júlí 2007 klukkan 08:18

Skrifa athugasemd

Atburđarteljari

Könnun

Hvađ gerir ţú?