Prófíll

  • Nafn: Elín Ósk Magnúsdóttir
  • Staður: Blönduós
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: á lausu
  • Um mig: Æj fokk off
  • Annað: eins og??

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

nýtt nýtt

12. september 2007 klukkan 20:18
Hvað haldiði??

Ný síða

www.123.is/elinosk


tjékkið og kvittið ;)
Elín Ósk Magnúsdóttir

10. september 2007 klukkan 17:13
Búin að þvo allt...slatti komin niður í tösku! Allt draslið mitt er á leiðinni af flakkaranum inn í tölvuna þannig að þetta er allt að smella saman.

Þá þarf ég bara að fara suður ekki seinna en 12 á morgun...kaupa eitt stykki síma, en ég er að spá í að fjárfesta í þessum
hér Hvernig lýst ykkur á??
Svo þarf ég að gera það versta!! fara til tannsa! *grát* Hver vill koma með og halda í höndina mína??
Svo ætla ég að hitta Öbbuna mína og eyða kvöldinu með henni! Og ég þarf líka að kveðja Elínu og láta hana fá friends seríurnar sínar ;)

Shit hvað ég á eftir að sakna allra! Ég er bara strax komin með kvíðahnút í magann yfir því! Allir verða að vera duglegir að kommenta og senda mail og láta vita af sér :) Ég ætla líka að fá mér norskt símanúmer þegar ég kem út til að símreikningurinn verði ekki eins hár :S Ég set það bara hérna inn á bloggið þegar það er komið.

En talandi um bloggið þá getiði hvað?? Ég er búin að búa til nýtt blogg :P hahaha Getur það skeð? Númer hvað er sú síða þá? hehe En ég hef bara aldrei fíla bloggar.is svo mikið eftir að nánst allir eru komnir með þetta! Allar síðurnar eins!! En þið fáið að vita slóðina fljótlega...er ennþá að vinna aðeins í henni og hafa hana eins og ég vil :)

Ætlaði bara að láta vita af mér.
Adios
Elín Ósk Magnúsdóttir

Símalaus

09. september 2007 klukkan 20:28
Bara tilkynna ykkur það að ég fer út á miðvikudaginn, fer suður um hádegi á þriðjudaginn þannig að þetta er bara allt að skella á!!! Þeir sem vilja kveðja mig (sem ég býst nú ekki við að séu einhverjir, en common, ég má vera bjartsýn) geta komið við hérna á Urðarbraut 9 á morgun (mánudag). Ég týndi símanum mínum á réttarballi í gær, sem bar BTW geggjað stuð, á ballinu sko, ekki að týna símanum! En já ég bara hefði eiginlega ekki geta hugsað mér betra seinasta djamm heldur en þetta :) Ekkert rosalega mikið af fólki í miða við réttarball, en þetta var mjög góðmennt !! :)

Jæja ætla að fara að ath hvort e-r hafi fundið símann minn...annars bara bless bless öll símanúmer og myndir!! *snuff*

Over and out
Elín Ósk
Elín Ósk Magnúsdóttir

allt craaazyy...

06. september 2007 klukkan 23:48

Sjæsinn...það er komin spenningur í stúlkuna! Verð komin út eftir 6 daga! Bráðum bara5!!! Og ekkert byrjuð að pakka...obbobbobb!
En það er margt sem gerist áður en ég fer út!
Morgundagurinn:
Réttir og ég er orðin hrikalega spennt þar sem ég fór ekki í fyrra út af útskriftarferðinnni...can´t wait :)

Laugardagurinn:
Enn meiri réttir, kveðjukvöldverður með familíunni plús nokkrum leynigestum ;) og svo hevý réttarball um nóttina sem klikkar (mig langar að segja aldrei en það má ekki svo ég segi...) sjaldnast. Seinasta djammið mitt hér á klakanum áður en ég fer svo það er  SKILDUMÆTING Og ég vil sko engar afsakanir! Ég stend í dyrunum með tjékklistann!

Sunnudagurinn:
Ég neita að vera þunn! Það verður ekki til í mínum orðaforða þann daginn! Spurning um að nota þynnkubanan! held það sé ráðið ;)
En þá eru Sveinsstaðaréttir sem eru alltaf helvíti skemmtilegar, man eftir því hérna í denn þegar ég mætti alltaf ein á staðin af mínu fólki svona fyrsta klukkutíman og stundum lengur þar sem enginn annar var í standi til að mæta :) hehehe
Svo þarf bara að drífa sig á dósina og byrja að pakka!!

Mánudagurinn:
Verður örugglega stress dauðans þar sem þá verða bara tveir dagar í brottför! Pakkapakkapakka.
Og ætli ég hafi ekki eins og eitt stykki Bryndísi hjá mér á meðan :) Er þaggi?? Æj viltu ekki bara koma með mér út???!!!

Þriðjudagurinn:
Klára að pakka og drífa mig svo suður um hádegi! Redda því sem þarf að redda þar og fara svo til tannsa :S:S:S:S: Hver vill koma með og halda í höndina mína??? Ég þarf þess virkilega mikið...er sko shit hrædd við þessa gaura!

Miðvikudagurinn:
BROTTFÖR þið eruð laus við mig í þrjá mánuði! En ég blogga þó áfram, en getiði hvað (segir maður þetta svona?? held ekki) ég er ´buin að búa til nýja síður sem tilheyrir dvöl minni í landi Norsara :) En þið fáið ekki að vita neitt strax :p ehehe


úff stress!!!

Annað sem ég get sagt ykkur...það eru breitt plön eftir áramót...ég verð ekki á Egilsstöðum eins og planið var hja okkur Bísu skvízu...En ég ætla ekki að útvarpa því hér strax ;) hehe

Og eitt enn...ég er komin með tölvu :) Ekki mac og ekki nýja tölvu samt! Tölvuna hans pabba þar sem hann fjárfesti í nýju kvikindi þannig að nú hef ég tölvu með mér út :) Sem er geggjað btw og þarf ekki að fara að láta senda me´r tölvu út og e-ð vesen, fæ bara macbookina mína þegar ég kem heim úr úglandinu ;) (Nanna ef þú lest þetta áður en ég tala við þig, þá.uu æj ég hringi við fyrsta tækifæri ;))

En heyri í ykkur lömbin mín...afsakið rumbluna út úr mér...er alveg á útopnu hérna!!!

Hilsen
Elín Ósk

Elín Ósk Magnúsdóttir

í fréttum er þetta helst...

27. ágúst 2007 klukkan 18:01
...að ég fékk flugmiðann minn í hedur í dag, ég fer út 12.sept efti 16 daga Hlæjandi Loksins er komin dagsetning á það sem ég er búin að vera bíða eftir í fimm ár eiginlega!! Ég ákvað nefnilega þegar ég fór til Noregs þegar ég var 15 ára að þangað skildi ég fara aftur og helst sem au-pair þegar ég væri búin með stúdentinn...og nú er bara að koma að þessu...ótrúlegt ...
Nú þarf að fara að ákveða hvað á að taka með og hvað ekki...ég sem þarf alltaf að fara með öll fötin mín...líka bolina sem ég nota aldrei, bara ef mig myndi allt í einu langa til að fara í þá. En ég má víst bara fara með 20 kíló svo bolirnir fá sennilega bara að vera heima í þetta skiptið...

...að ég fór til Akureyriar um helgina og hitti stelpurnar mínar, alltaf jafn gott og gaman að hitta þær þessar elskur, við brölluðum margt og hlógum mikið. Fórum líka niður í bæ á lau kvöldið á menningarvökuna, nokkuð skemmtilegt bara. En ég og Abba gerðumst gamlar og vorum komnar í rúmið kl 12 enda var okkur orðið óeðlilega kalt...

...að Elín er komin heim frá Krít, sólbrunnin og sæt. Hún gaf mér hestahandklæði :) víí. Og ótrúlegt en satt þá er þetta mitt fyrsta hestahandklæði...hehe

...að dagurinn í dag er sjálfsagt misheppnaðasti dagurinn í vinnunni í langann tíma. Vorum að fá nýjar umbúðir fyrir rjómaostinn, lokin passa ekki almennilega í pökkunarvélina svo að ég stóð dággóðann tíma í dag og þrýsti ofan á lokin til að vélin næði lokunum...skemmtilegt það. Svo þegar við vorum loksins búin að pakka upp úr 2 minnir mig (erum venjulega búin um 12) þá var allur rjómaosturinn náttúrulega inn á kæli...og kl 4 uppgötvaðist það að hitastigið var komið upp í 30°C svo við þurftum að bjarga ostinum í snatri...sjæsinn sko! Þá voru einhverjir viðgerðargaurar að klúðra þessu hitastigi svona illilega! En jæja...ég var komin heim upp úr 5...jeyjj...

...að það er komin ný könnun sem allir eiga að svara!

...að ég ætla að hætta þessu blaðri og fara að taka til í herberginu mínu og þvo þvott...gaman...?

En þrátt fyrir þennan misheppnaða dag þá er ég samt í skýjunum út af því að e´g er komin með flugmiðana...þeir komu svo á hárréttum tíma Hlæjandi

Mange klemmer
Elín Ósk
Elín Ósk Magnúsdóttir

engin fyrirsögn

13. ágúst 2007 klukkan 16:14
Long time no see....síðan hvenær hefur það gerst að Elín Ósk bloggi ekki í tvær viku, og ekki almennilegt blogg í næstum því mánuð??? Jedúddamía.
En þar sem $/(/#$(/)("($% tölvan mín er ekki komin í búðina ennþá þá á ég bara enga tölvu og það er mjög mismunandi hvort ég hafi yfirleitt aðgang að tölvu, þ.e. þegar pabba dettur í hug að taka tölvuna með sér í ferðalög...dóttur sinni til mikilla mæðu.

Já það hefur margt drifið/dryfið (hvort er það??) á daga mína síðan seinast sem ég nenni engan vegin að blaðra um!

Það sem bar hæst var auðvitað ÞJÓÐHÁTÍÐ en þangað fór ég ásamt (mjög) fríðu föruneyti að morgni fimmtudags 2. ágúst og kom heim aftur aðfaranótt þriðjudagsins 7. júlí. Þetta var náttúrulega bara snilld út í gegn...þvílík upplifun og læti. Drakk nú ekki eins mikið og ætlast er til á svona samkomum sökum slapps maga...en ég skemmti mér engu að síður vel, hver segir að áfengi þurfi alltaf að vera við hönd þegar maður er að skemmta sér ?? ;)

Það var líka félagsmót Neista hérna á laugardaginn...það var fínt, hefði samt mátt vera meira fólk, en það voru 50 skráningar minnir mig svo ég ætla ekki að kvarta meir ;) hehe. Óli bró stóð sig með stakri prýði og kom heim með 5 bikara ;) Tvo fyrir tölt, tvo fyrir fjórgang og svo voru þeir Gáski par mótsins ;)
Mér fannst samt skemmtielgast að sjá hvað krakkarnir og unglingarnir eru orðnir öflugir...nokkuð margar skráningar bæði í barna og unglingaflokki....annað en þegar ég var að keppa í þessum flokkum, þá var ég oftast ein!

Svo má nú ekki gleyma heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem var núna um helgina og fyri rhelgi. Íslendingar komu heim með 6 gull, 3 silfur og  1 bronsverðlaun og það er nú bara mjööög góður árangur hjá liðinu okkar :) Við fengum meira að segja tvö gull í skeiði sem hefur ekki gerst síðan 99 held ég. Vá hvað Kraftur er hrikalega góður!! Ég á eftir að sakna hans á mótunum hérna heima! Ömurlegt að geta ekki komið með hestana aftur heim! En Tóti og Kraftur urðu heimsmeistarar í fimmgangi og voru nr tvö í tölti á eftir þeim mögnuðu Stian Petersen og Jarl frá Miðkrika en þeir urðu líka heimsmeistarar í fjórgangi! Hvinur frá Holtsmúla reif undan sér skeifu þegar hann átti aðeins tvo hringi eftir í úrslitunum svo þeir endaðu í  fimmta sæti...en voru lang efstir fyrir yfirferðina...ekkert smá svekkjandi :( En Stian og Jarl voru vel að sigrinum kominir og ég sé ekkert á eftir tölthorninu til Noregs enda er ég að fara þangað eftir innan við mánuð ;) Spái í því :P

Bara smá hestapistill af því að ég á nú svo marga vini sem elska hesta alveg hreint út af lífinu ;) hehe

En náðuði því...ég er að fara til Noregs EFTIR MÁNUÐ!!! Dagsetningin er reyndar ekki alveg nelgd ennþá. Það er náttúrulega búið að vera crazy að gera hjá fólkinu þarna úti þar sem þau voru nú á heimsmeistaramótin og svona. Fyrir þá sem ekki vita er ég að fara til þessa Stians sem varð tvöfaldur heimsmeistari og Agnesar konunnar hans, hún er íslensk en hann norskur og ég verð aupair hjá þeim fram að jólum ;) Er farin að hlakka svo hriiiikalega mikið til að ég bara.....veit ekki hvaða lýsingarorð ég á að nota ;) hehe

O jæja....þetta er orðið miklu lengra blogg en ég ætlaði...vildi bara ekki láta síðuna deyja alveg ;)  Vonandivonandi verður næsta blogg úr glænýrri tölvu :)

bið að heilsa í bili og sendi kveðju og risa knús á Elínuna mína sem er úti á Krít að sóla sig án mín! (og hún lánaði mér ekki einu sinni nýja bílinn sinn á meðan...piff, þetta kallar maður vini sína ;) hehe)
Elín Ósk Magnúsdóttir

vertu vinur vina þinna

31. júlí 2007 klukkan 17:04

Ég fann þetta á netinu og langaði til að deila því með ykkur...

smá dæmisaga:
Dag einn, þegar ég var busi í menntaskóla, sá ég strák sem var með mér í bekk á leið heim úr skólanum. Hann hét Árni.  Það leit út fyrir að hann bæri allar námsbækurnar sínar.
Ég hugsaði með sjálfum mér "Hvað í ósköpunum fær einhvern til að burðast með allar bækurnar heim með sér á föstudegi? Hann hlýtur að vera alger nörður."
Ég hafði planað rólega helgi (partý og fótboltaleik með félögunum annað kvöld), svo ég ypti öxlum og hélt mína leið. En þar sem ég gekk, sá ég hóp stráka koma hlaupandi að Árna. Þeir réðust beint á hann, hentu honum í skítuga götuna og fleygðu öllum bókunum sem hann hélt dauðahaldi í útum allt. Gleraugun hans flugu af honum og ég tók eftir hvar þau lentu nokkra metra frá á litlum grasbletti við hliðina. Um leið og strákarnir voru farnir, leit hann upp og ég sá þessa hræðilegu depurð í augum hans.

Ég kenndi í brjósti um hann. Svo ég skokkaði til hans um leið og hann skreið um í leit að gleraugunum, og ég sá tárin í augum hans. Um leið og ég rétti honum gleraugun, sagði ég, "Þetta eru asnar. Þeir ættu virkilega að finna sér eitthvað betra að gera."

Árni leit á mig og sagði, "Hey takk!"  Og yfir andlit hans færðist eitt stórt bros. Þetta voru ein af þeim svipbrigðum sem sýndu sannarlegt þakklæti. Ég hjálpaði honum að týna upp bækurnar, og spurði hvar hann ætti heima. Þá kom í ljós að hann bjó rétt hjá mér, svo ég spurði hann af hverju ég hefði aldrei séð hann áður. Hann sagðist vera ný fluttur í bæinn, og væri utan að landi.

Ég hefði aldrei látið spyrjast út að ég væri með einhverjum sveitadurg áður. Við töluðum saman alla leiðina heim, og ég bar fyrir hann bækurnar. Árni reyndist vera hinn svalasti fýr.
Ég spurði hvort hann vildi kannski koma með mér í fótbolta á laugardagskvöldið með mér og félögunum. Og hann sagði já. Við vorum saman alla helgina, og því betur sem ég kynntist Árna, því betur kunni ég við hann. Og hann fittaði vel í vinahópinn.

Mánudagsmorgun kom, og þarna kom Árni aftur með þennan stóra stafla af bókum. Ég stoppaði hann og sagði "Vá, þú átt eftir að fá svakalega bésefa af öllum þessum bókaburði alla daga!"

Hann hló bara og rétti mér hálfan bunkann. Næstu fjögur árin urðum við Árni bestu vinir. Á síðustu önn fyrir útskrift, vorum farnir að huga að framhaldsnámi. Árni ætlaði í Háskólann en ég var að hugsa um að fara erlendis til frekara náms.

Ég vissi að við yrðum alltaf vinir, og þó við yrðum viðskila um einvhern tíma þá breytti það engu þar um. Árni ætlaði að verða læknir, en ég ætlaði í viðskiptanám til Bandaríkjanna og fá styrk útá fótboltann. Árni var dúxinn í bekknum okkar og ég stríddi honum oft á að hann væri alger njörður. Svo þurfti hann að halda útskriftarræðuna.

Mikið var ég feginn að þurfa ekki að fara þarna uppí púlt og halda ræðu. Á útskriftardaginn, sá ég Árna. Hann leit ekkert smá vel út. Hann var einn af þessum sem naut sín í menntaskóla. Hann var narðarlegur með gleraugu, en samt fékk hann fleir stefnumót en ég !... stelpurnar hreinlega elskuðu hann!

Oh boy, öfundaði maður hann stundum. Og í dag var einn af þeim dögum. Ég sá að hann var svolítið stressaður útaf ræðunni, svo ég klappaði á öxlina á honum og sagði "Blessaður vertu, þú átt eftir að vera frábær!"

Hann leit á mig með einum af þessum svipbrigðum (sem sýndu þakklæti) og brosti. "Takk vinur,". Fá orð en sögðu mikið.

Þegar hann stóð uppí ræðupúltinu, ræskti hann sig og hóf ræðuna. "Á útskriftardegi er við hæfi að þakka þeim sem hjálpuðu manni í gegnum þennan erfiða tíma. Foreldrum sínum, kennurum, skólafélögum, jafvel þjálfara... en einkar og sér í lagi vinum sínum. Ég er hér til að segja ykkur það, að vera vinur einhvers er besta gjöf sem þið getið gefið. Ég ætla að segja ykkur stutta sögu."

Ég horfði bara á vin minn með vantrú, þegar hann sagði söguna af deginum sem við hittumst fyrst. Hann hafði ákveðið að fremja sjálfsmorð þá um daginn. Hann lýsti því hvernig hann hafði hreinsað skápinn sinn í skólanum til að bjarga mömmu sinni frá því, og var því með allt dótið í fanginu. Hann horfði beint á mig og brosti. "Til allrar hamingju var mér bjargað. Vinur minn kom í veg fyrir að ég gerði hið ófyrirgefanlega.

Ég heyrði salinn taka andköf, um leið og þessi myndarlegi og vinsæli strákur sagði okkur allt um þennan hræðilega tíma sem hann upplifði. Og um leið sá ég foreldra hans líta til mín brosandi með sama þakklætissvipnum. Það var ekki fyrr en þá að ég gerði mér almennilega grein fyrir hvað Árni var að tala um.

Þú skalt aldrei vanmeta mátt gjörða þinna.
Hversu smátt sem það kann að sýnast, getur það gjörbreytt lífi fólks. Bæði til hins betra og verra. Guð setur okkur öll inní líf hvers annars til að hafa áhrif að einhverju leiti. Leitandi að hinu góða í okkur öllum.

Njótið lífsins með þeim sem ykkur eru kærir, við vitum aldrei hvenær þeim tíma gæti lokið.

Elín Ósk Magnúsdóttir

snilldin ein...

19. júlí 2007 klukkan 19:00
Það er nú bara skilda að blogga eftir seinustu helgi sko!! En hún var alveg hreint mögnuð btw!!

Hún byrjaði á föstudaginn þegar við Neistamenn fórum í fánareið um bæjinn við setningarathöfnina :) Ég kom meira að segja í Mogganum, með þetta líka HRIKALEGA bros....grunar sterklega að ég hafi verið að gretta mig framan í einn aðdáandann ;) hehe. Eftir það kom fósturdóttir foreldra minna (Bryndís Fanný) til að dveljast yfir helgina...en við sváfum út í hjólhýsi (muna: gluggar á hjólhýsum geta klippt stykki úr puttanum á manni!!!) Kíktum á Bakkann um kvöldið þar sem við hittum slatta af góðu fólki ;) Um morguninn þegar við vöknuðum var það EKKI ÉG sem var þunn :D:D Hvaaað kemur til?? Ég bara spyr. Eftir að búið var að hressa betri helminginn minn við fórum við að teyma undir krökkum á hestbaki í tvo klukkutíma STUÐ. En veðrið var þó gott :) Skunduðum okkur svo beint á leik milli núverandi Hvatarliðsins og liðsins síðan 1987 sem urðu einhverjir meistarar or some...og auðvitað unnu strákarnir mínir :) (ég segi mínir þar sem ég er að vinna með hálfu liðinu (sannleikurinn eru samt 4, næstum 5 liðsmenn ;)))  Matur með fullt af fólki á Pottinum og pönnunni um kvöldið (Elínu, Odd, Runa, Signý, Nonna, Ástu?) Svo dribbum við okkur heim og gelluðum okkur upp á milli þess sem við tókum lúr í sófanum ;) Þá var haldið í partý í blokkinni þar sem var sturtað í sig bjór og tekíla, spiað drykkjuspil og rifist við nágrannanna (Gilsa bró...samt bara í djóki í þetta sinn ;)) Svo var bara skokkað á ball...sumir áttu auðveldara með það en aðrir ;) Heyriði, þetta ball var nú bara alveg argasta snilld!!! Shjett hvað ég skemmti mér vel :)
Á sunnudeginum bjóst ég við þynnku frá helvíti....en nýja þynnkuráðið mitt bjargaði öllu, en ég kýs að auglýsa þau ekki hér ;) Ég og Bryndís skellum okkur bara á rúntinn á Bens NB og rúntuðum um sveitirnar ;)

Vil bara þakka öllum fyrir góða skemmtun um helgina (taki þeir til sín sem eiga ;))

Svo eru það bara EYJAR eftir TVÆR vikur takk fyrir pent!!! Geeeet ekki beðið lengur sko!! Þetta verður alveg hriiikalega gaman!! :D:D:D

Svo er ég í óða önn að plana næsta vetur...verð í Norge fram að áramótum allavega...eftir áramót er ennþá á planborðinu...en það gæti orðið ansi spennandi tími ef plönin ganga upp...right Bryndís ;););) Þannig að ég get ekki sagt annað en að ég sé bara ansi spennt yfir ansi mörgu þessa dagana! Fyrir utan það að ég er jafnvel að hugsa um að skreppa á ak á morgun og kaupa mér eitt stykki tölllu...og hitta Öbbuna mína í leiðinni, ég er bara ekki alveg búin að segja henni frá þesssum plönum ;) Henni að kenna að vera ekki í símasambandi :P

Svo eru myndir inn á myndasíðunni hennar Bryndísar...mínar eru ekki enn komnar inn :(

Gott í bili, hver veit nema ég bloggi næst úr nýrri tölvu :D
Over and out...
Elín Ósk Magnúsdóttir

...

12. júlí 2007 klukkan 23:02
jæja þá...ég skal ekki hætta alveg, nenni bara ekki að blogga í sumar, allavega ekki þegar ég á enga tölvu :(  Byrja allavega aftur þegar ég fer út í haust ;)

En annars er e-ð búið að gerast sem ég nenni ekki að skrifa um annað en:
- Brúkaup Óla og Ingu Sóleyjar
- Litli sólargeislinn var skírð í leiðinni og fékk hún það fallega nafn Sunna Margrét.
- ættarmót
- sundferð (sú fyrsta í e-r ár)
- akureyrarferð
- rúntur í 2 og hálfann tíma eitt kvöldið (ég rúnta nánast aldrei, þessvegna eru þetta fréttir)
- mætti á héraðsmót í frjálsum eftir langt hlé, lagði þó ekki í að keppa svo ég var bara starfsmaður ;) (Og auðvitað unnu Geislar samanlagða...hvað annað;))


Held þetta sé u.þ.b. allt svo er bara Húnavakan um helgina :D sem þýðir fánareið á morgun og djamm á bakkanum um kvöldið. Teyma undir krökkum á laugardaginn þunn og fín ;) og svo ball um kvöldið þar sem er skildumæting! Sjæsinn hvað ég hlakka til. Sunnudagurinn verður svo bara tekin í þynnku ;) hehe

Þetta er nóg fyrir ykkur út sumarið ;) (nema ég fái tölvu fljótlega og langi agalega mikið til að byrja að blogga aftur ;))

Tjátjá
Elín Ósk Magnúsdóttir

til hvers....

26. júní 2007 klukkan 20:41
...að halda uppi bloggsíðu sem enginn les??

Nenni þessu ekki fyrst það er greinilega enginn að lesa....takk og bless!!!
Elín Ósk Magnúsdóttir

Atburðarteljari

Könnun

Hvað gerir þú?